01. tbl. 95. árg. 2009

Umræða og fréttir

Ný upplýsingaveita á vegum Landlæknisembættisins

Nýr vefur fyrir kóðuð flokkunarkerfi á vegum Landlæknisembættisins var opnaður í lok nóvember. Vefurinn ber heitið SKAFL sem er skammstöfun fyrir Stöðluð kóðun í alþjóðlegum flokkunarkerfum Landlæknisembættisins og er hann að finna á slóðinni www.skafl.is Þar eru birt öll flokkunarkerfi sem landlæknir hefur mælt fyrir um að nota skuli í íslenskri heilbrigðisþjónustu.

Flokkunarkerfi eru notuð, til dæmis til að auðkenna sjúkdómsgreiningar, ýmis inngrip, svo sem skurðaðgerðir, og til skráningar á hjúkrunargreiningum og úrlausnum. Skráning í íslenskri heilbrigðisþjónustu byggir á aðgengilegum og viðeigandi flokkunarkerfum. Stór hluti starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar notar flokkunarkerfi daglega við skráningu, læknar, hjúkrunarfræðingar og læknaritarar, en fleiri stéttir hafa þörf fyrir kóðuð flokkunarkerfi við sína skráningu, svo sem sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar. Vef þessum er ætlað að auðvelda þau störf, en rafræn birting tryggir einnig bætta dreifingu á uppfærslum og viðbótum. Hið nýja vefviðmót fyrir flokkunarkerfin verður því veigamikil viðbót við starfsumhverfi heilbrigðisstétta.

Lilja Sigrún Jónsdóttir er verkefnisstjóri flokkunarkerfa hjá Landlækni og hefur haft veg og vanda af uppsetningu vefsins. Hún segir að viðbrögð hafi almennt verið góð en vinna við viðbætur og aukna leitarmöguleika fyrir þarfir einstakra notenda hafi þegar hafist. „Við reiknum með að viðbæturnar verði komnar í gagnið um miðjan janúar og ef allt gengur að óskum getum við kynnt þær ásamt vefnum í heild á Læknadögum í janúar.“

Hlutverk flokkunarkerfa í rafrænum sjúkraskrám er að samræma skráningu og auka gæði og notagildi skráðra gagna. Gæði skráningar í heilbrigðisþjónustu verða æ mikilvægari nú í ljósi aukinnar áherslu á kostnaðargreiningu hennar og eru kóðuð flokkunarkerfi mikilvægur hluti af því ferli. Vonir standa því til þess að nýi vefurinn komi að góðum notum.

Löng hefð er fyrir þýðingum og útgáfu alþjóðlegra flokkunarkerfa hér á landi. Þau voru áður gefin út á prenti en hafa í seinni tíð einnig verið gerð aðgengileg á rafrænu formi á vef embættisins. Til þessa hefur rafrænt birtingarform flokkunarkerfanna ekki gert þeim full skil. Þar hefur til dæmis vantað skýringartexta, millivísanir og frávísanir eins og við á hverju sinni. Af þessum sökum hafa vefskrárnar ekki getað komið að fullu í stað bóka.

Til að gefa yfirsýn yfir umfang útgáfunnar innihalda flokkunarkerfin sem birtast á þessum nýja vef embættisins rúmlega 34.000 skráð heiti. Til samanburðar eru uppflettiorð Orðabókar Menningarsjóðs 85.000 talsins. Umsýsla flokkunarkerfanna er unnin við Landlæknisembættið, en þýðingar þeirra eru unnar í góðu samstarfi við fagstéttir eftir því sem við á.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica